Ég átti áhugavert spjall við pabba í dag. Ég ákvað að spyrja hann hvort hann vissi eitthvað um vistarbandið. Hann yppti öxlum og sagði, "Vistar hvað?“ Ég hélt áfram að útskýra fyrir honum út á hvað það gekk og þá sagði hann: "Já, ertu að tala um svona vinnuhjú sem voru á mörgum bóndabæjum?“ Pabbi gamli vissi einhvern veginn ekki hvert ég ætlaði að fara þegar ég fór að ræða þetta við hann, og hvernig sagan af vistarbandinu hefur verið rómantíseruð í kringum gamla sveitasamfélagið á Íslandi. Ég útskyrði fyrir pabba gamla hversu grimmt og miskunarlaust þetta kerfi var. En hann ákva ðað breyta um umræðuefni. Mjög áhugavert.
Vistarbandið var klassískt dæmi um hvernig valdastéttin misnotaði lágstéttina kerfislega. Ef horft er á lengri tíma og fjölda fórnarlamba er meðferð íslensks samfélags á fátæku fólki, börnum og öldruðum í gegnum vistarbandið, allt fram á 20. öld, líklega sársaukafyllsta og mest þaggaða saga þjóðarinnar. Fólk sem gat ekki séð fyrir sér var boðið upp á hreppum eins og búfénaður, bókstaflega, sá sem bauðst til að halda viðkomandi uppi fyrir lægstu upphæðina frá hreppnum fékk hann í vinnu. Börn voru tekin frá foreldrum sínum, hjón skilin að og fólk svelt, barið og látið þræla við ömurlegar aðstæður. Heimildir og sagnfræðirannsóknir benda eindregið til þess að kynferðisleg misnotkun og ofbeldi gagnvart vinnukonum, vinnuhjúum og fleirum. Einnig var "lausamennska“, það að eiga ekki fasta vist hjá bónda, bönnuð með lögum, svo fátækt fólk var í raun eignalaus vinnuaflsþræll landeigenda. Þetta er sjaldan kennt sem lögfest mannréttindabrot í skólum, heldur frekar heyrum við frasa eins og "erfiðir tímar í gamla daga“. Afkomendur þeirra sem urðu fyrir þessu bera enn sár í fjölskyldusögum sínum, en þjóðin í heild hefur aldrei horfst í augu við hversu grimmilega íslenska bændasamfélagið og yfirvöld komu fram við þá sem minnst máttu sín. Það voru meira að segja dönum að þakka og danir sem áttu stærstan þátt í að vistarbandið var afnumið. Á 18. og 19. öld reyndu danskir embættismenn og konungar oft að koma á umbótum, leyfa frjálst val á búsetu og efla þéttbýli, en íslenskir bændur og valdastéttinn þá tima, börðust af hörku gegn því. Þeir sendu mótmælabréf til Kaupmannahafnar og töfðu afnám vistarbandsins allt til ársins 1894. Ef íslenskir stórbændur og Alþingi hefðu fengið að ráða einir hefði þetta kerfi líklega lifað mun lengur. Svona i gamni mínu ákvað ég að heimfæra þetta yfir á nútímann, svona til þess að sýna hversu grimmt þetta kerfi var í raun. Í grunninn skipti vistarbandið þjóðinni í tvennt, annarsvega þá sem áttu land og fjármagn, og þá sem áttu bara eigið vinnuafl. Ef þetta kerfi væri við lýði árið 2026 væru allir leigjendur, eignalausir og ungt fólk án fjölskylduauðs lagalega skyldugir til að skrá sig í fasta ársvist hjá fasteigna eða fyrirtækjaeigendum til að teljast ekki sekir um lausamennsku. Erlent verkafólk á vegum starfsmannaleiga, sem býr nú þegar næst nútímaútgáfu af þessu þegar bæði atvinnuleyfi og húsnæði eru bundin einum vinnuveitanda, væri lögfest í ánauð. Öryrkjar, langveikir og atvinnulausir yrðu sviptir sjálfræði og boðnir upp til stofnana eða heimila sem fengju greitt fyrir að halda þeim uppi gegn vinnuframlagi, og lágtekjufólki og einstæðum foreldrum á fjárhagsaðstoð yrði einfaldlega sundrað og börnin send í vist annað til að borga niður "skuld“ sína við samfélagið.
Það rann upp fyrir mér eftir þetta samtal að við höfum í raun aldrei gert upp vistarbandið opinberlega á neinn hátt. Engin formleg afsökunarbeiðni hefur komið fram og engin raunveruleg viðurkenning. Ástæðan er líklega rómantísering sveitasamfélagsins í upphafi 20 aldar, í kringum sjálfstæðisbaráttuna, þegar íslenski bóndinn og sveitin voru sett á stall sem kjarni þjóðarsálarinnar. Þjóðarstoltið var of mikið. Ef farið hefði verið í sársaukafullt uppgjör við vistarbandið og meðferðina á vinnuhjúum og niðursetningum hefði sú glansmynd hrunið strax. Það voru nefnilega ekki "vondir útlendingar“ eða danskir embættismenn sem héldu fátæku fólki í ánauð, heldur íslenskir bændur þe bændastéttin, hreppstjórar og prestar sem nýttu sér ódýrt og réttlaust vinnuafl. Þöggunin lifði og lifir enn áfram í fjölskyldunum, og mér finnst sláandi hvernig þetta er kennt í dag. Þegar vistarbandið er nefnt í kennslubókum er það oftast útskýrt sem nauðsyn þess tíma, leið til að tryggja bændum vinnuafl og halda fátækum frá flækingi. Það er sjaldan sett fram sem það sem það raunverulega var fyrir stóran hluta þjóðarinnar, lögfest frelsissvipting, mannréttindabrot, vinnuþrælkun og kerfisbundin grimmd gegn varnarlausu fólki og börnum. Vistarbandið er einskonar kynslóðaáfall (e .generational trauma).
Sorry rantið, og kangan texta. En þetta hefur kraumað lengi í mér.
En ég ákvað að stingja niður penna, rýndi aðeins í skrif eftir sagnfræðinginn Gísla Gunnarsson og Guðmundur Hálfdanarson sanfræðing. Ég mæli með viðtali eftir síðarnefndi.
Tek það lika fram að vistarbandið var auðvitað ekkert séríslenskt fyrirbær. En þa ðvar sérstakt fyrirbæri á íslandi.